Saga Norðuróps

Óperufélagið Norðuróp var stofnað á Akureyri haustið 1999 sem samvinnuverkefni Tónlistarskóla Akureyrar, Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Leikfélags Akureyrar og óperusöngvara á svæðinu.

Félagið hefur starfað í Reykjanesbæ frá árinu 2001. Jóhann Smári Sævarsson, óperusöngvari, hefur verið listrænn stjórnandi frá upphafi.

Norðuróp hefur, til dagsins í dag, flutt fjöldann allan af óperum og óperutónleikum. Félagið er lengst starfandi grasrótarópera landsins og hefur lagt ríka áherslu á að fara nýjar leiðir í flutningi ópera og óperutónlist.

Margir ungir söngvarar hafa fengið sín fyrstu tækifæri að syngja óperuhlutverk á sviði Norðuróps í bland við landsþekkta stórsöngvara sem einnig hafa tekið þátt í uppfærslum félagsins. Má þar nefna:

Jóhann Smári Sævarsson
Kristján Jóhannsson
Garðar Thor Cortes
Aron Axel Cortes
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Egill Árni Pálsson
Þóra Einarsdóttir
Hallveig Rúnarsdóttir
Guja Sandholt
Bylgja Dís Gunnarsdóttir
Elsa Waage
Hrólfur Sæmundsson
Viðar Gunnarsson 
Bergþór Pálsson 
Davíð Ólafsson
Keith Reed

Við höfum flutt óperur í gamalli skipasmíðastöð (Gianni Schicci, Z-Ástarsaga), í Keflavíkurkirkju (Tosca I þáttur í Kirkjunni, II þáttur í safnaðarheimilinu og III þáttur “open air” þar á milli) ..í fokheldri skólabyggingu Eugin Onegin og flutt Mozart Requiem í gamalli fiskverkun með sinfóníuhljómsveit svo eitthvað sé nefnt.