Norðuróp óperufélag
Óperufélagið Norðuróp var stofnað á Akureyri haustið 1999 sem samvinnuverkefni Tónlistarskóla Akureyrar, Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Leikfélags Akureyrar og óperusöngvara á svæðinu. Félagið hefur starfað í Reykjanesbæ frá árinu 2001. Jóhann Smári Sævarsson óperusöngvari, hefur verið listrænn stjórnandi frá upphafi.
Norðuróp hefur til dagsins í dag flutt fjöldann allan af óperum og óperutónleikum, er lengst starfandi grasrótarópera landsins og hefur lagt ríka áherslu á að finna nýjar leiðir í að flytja óperur og óperutónlist. Margir ungir söngvarar hafa fengið sín fyrstu tækifæri að syngja óperuhlutverk á sviði hjá okkur í bland við landsþekkta stórsöngvara sem hafa tekið þátt í uppfærslunum okkar.
Kennsla
Í Óperustúdíói Norðuróps er lögð rík áhersla á vandaða og markvissa kennslu. Nemendur fá persónulega leiðsögn frá reyndu fagfólki þar sem unnið er með söngtækni, túlkun, sviðsframkomu og listrænt sjálfstraust. Markmiðið er að hver söngvari fái tækifæri til að þroskast á eigin forsendum og nýta hæfileika sína til fulls í öruggu og skapandi umhverfi.
Sviðslist
Í Óperustúdíói Norðuróps er sviðsreynsla órjúfanlegur hluti af náminu. Nemendur fá fjölmörg tækifæri til að stíga upp á svið, takast á við ólík hlutverk og þróa með sér öryggi, nærveru og fagmennsku í flutningi. Áhersla er lögð á vandaða sviðsþjálfun þar sem unnið er markvisst með leik, túlkun, hreyfingu, samskipti og nærveru.
Samfélag
Í Óperustúdíói Norðuróps og Hátíðarkórnum verður til sterkt og gefandi samfélag þar sem fólk með sameiginlega ástríðu fyrir listinni kemur saman. Samstarfið við aðra listamenn er stór hluti af upplifuninni. Í sameiginlegu listrænu umhverfi verða til ný tengsl, vinátta, innblástur og dýrmæt reynsla.
Óperustúdíó Norðuróps
Gjaldskrá
Leið 1
Ætlað sem valkvætt nám fyrir söngnemendur Tónlistarskóla Reykjanesbæjar (TR):
Óperustúdíó: 35.110 kr. + skólagjöld
Leið 2
Ætlað þeim sem hafa lokið framhaldsprófi í söng. Þátttakendur sem eru ekki nú þegar nemendur Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, verða skráðir nemendur í söng við skólann.
Óperustúdíó: 35.110 kr. + skólagjöld
Leið 3
Ætlað söngvurum sem lokið hafa námi sínu og nemendum LHÍ, sem og nemendum úr öðrum tónlistarskólum sem lokið hafa a.m.k. miðprófi og hafa áhuga á þátttöku í Óperustúdíóinu og/eða Hátíðarkórnum og eru hjá kennara í öðrum tónlistarskólum.
Óperustúdíó: 62.000 kr.
Söngtími (60mín): 8.000 kr.
Meðleikstími (30mín/60mín): 4.000/8.000 kr.
Engin skólagjöld
Leið 4
Ætlað söngnemendum sem lokið hafa a.m.k. miðprófi og mjög vönum kórsöngvurum.
Þáttaka í Hátíðarkórnum (september-nóvember)
Gjaldfrítt









